Viðbætur fyrir alla
Firefox er með mikla möguleika á að sérsniða netnotkun og þá sérstaklega vafranotkun. Það eru til yfir 5.000 viðbætur (aukahlutir sem hægt er bæta við Firefox til að koma til móts við þínar þarfir) sem bara bíða eftir að hjálpa þér, skemmtu þér vel og vertu skapandi á netinu.
Viltu eitthvað sérstakt? Athugaðu þessi dæmi hérna fyrir neðan, heimsóttu svo viðbótarsvæðið okkar til að skoða alla möguleika.
Aðvaranir & Uppfærslur
Með því að nota viðbætur í þessum flokki, geturðu náð í nýjustu upplýsingar um veðrið, íþróttir og jafnvel eBay uppboð. Rauntímaupplýsingar eru birtar í vafranum, sama hvaða vefsvæði þú ert á.
Til dæmis: Fylgstu með þínum eBay viðskiptum þegar þú ert á vefnum.
Prufaðu Firefox eBay útgáfuna frá eBay fyrirtækinu
Ljósmyndir, Tónlist & Myndbönd
Breyttu Firefox í ljósmynda græju, tónlistarspilara og fjölhæfan margmiðlunarspilara. Það er eins og að vera með margmiðlunarstjórntæki við höndina á meðan þú vafrar, vinnur, sendir pósta eða leitar heimilda á vefnum.
Til dæmis: Stjórnaðu næstum því hverjum einasta margmiðlunarspilara beint frá vafranum.
Prufaðu FoxyTunes eftir Alex Sirota
Til dæmis: Finndu ný vefsvæði, tengstu svo við vini þína og láttu þá vita af því.
Prufaðu StumbleUpon eftir StumbleUpon
Þema
Ekki takmarka upplifun vafra við staðlaða hönnun. Veldu nýja liti, gerðu vafrann auðveldari í notkun (með stærri tökkum, til dæmis) eða veldu bara útlit sem hentar þér.
Til dæmis: Þema fyrir fólk sem vill hafa það svart.
Prufaðu NASA Night Launch eftir mcdavis941