Mozilla er ekki venjulegt hugbúnaðarfyrirtæki. Við erum alþjóðlegt samfélag ákveðið í að byggja frjálsan, opinn hugbúnað og tækni sem bæta netið fyrir fólk allstaðar. Við erum forritarar, markaðsfólk, prófunarfólk, og málsvarar út um allan heim eru að vinna að því að vefurinn verði alltaf opinn fyrir alla. Við trúum því að opnir staðlar geri okkur kleift að hafa val og nýsköpun og að hver sem er, hvar sem er eigi rétt á öruggasta, hröðustu og bestu hugsanlegu upplifun á netinu.
Okkar verðlaunaði, opni hugbúnaður og tækni eru í boði ókeypis til allra í heiminum á yfir 40 tungumálum.
Mozilla er staðsett í Mountain View, Kaliforníu með svæðisbundnar skrifstofur í Auckland, Beijing, Kaupmannahöfn, París, Tókýó og Torontó.