Hvernig gerum við það?
Hvað gerir Firefox öðruvísi? Í fyrsta lagi erum við með opinn hugbúnað. Það þýðir að hver sem er í heiminum (og við erum með þúsunda sérfræðinga sem fylgjast með okkur) getur skoðað kóðann okkar og fundið hvern mögulega veikan blett í okkar brynvörn.
Og þegar við fréttum af vandamáli, þá tökum við til höndunum og lögum það strax. Það kemur þér best (og okkur) að laga vandamálið, jafnvel þótt það þýði að við þurfum að viðurkenna að við séum ekki fullkomnir.
Þannig að einfaldlega, þitt öryggi er í hæsta forgangi hjá okkur.
Það er skynsemi í okkar geðveiki
Enginn elskar Netið meira en við. En svikarar, amagaurar og skotglaðir vírusar eru raunverulegar hættur, þannig að þú þarft að vernda þig þegar þú ert á vefnum.
Þar kemur Firefox inn.
Að nota hann er öruggasta leiðin til að vafra á vefnum því:
- Við reynum ekki að takast á við vandamálið einir. Alþjóðlegt samfélag af öryggissérfræðingum eru að vinna nótt og dag við að gera þína vöfrun örugga (þetta er því að þakka því að við erum opinn hugbúnaður). Þetta er eins og ef hverfisvaktinni væri stjórnað af vel þjálfuðum Ninjum.
- Við hugsum um öryggi þitt í hverju skrefi. Öryggissérfræðingar byrja strax að reyna að hugsa um og laga hugsanleg vandamál áður en svo mikið sem ein lína af kóða er skrifaður.
- Við höldum utan um málið. Við erum sífellt að athuga hættur og gefum út nýjar útgáfur af Firefox til að vera alltaf einu skrefi á undan. Að vinna með opinn hugbúnað þýðir að hver sem er getur hjálpað okkur að finna og laga hugsanlegar veikar hliðar hjá okkur.
Fyrir meiri upplýsingar um hvernig Firefox heldur þér öruggum á netinu, heimsæktu öryggisbloggið okkar.